|
Matarást
Laugardagur 19. apríl 2008
Rabbabarakökur Sem ábætisréttir og á kaffiborðið
Rabbabarakaka með deigloki
Takið fram eldfast mót. Í það er settur slatti af skornum rabbabara og saman við hann eru hrist einn bolli af blöndu af kartöflumjöli og sykri.
Ofaná er sett eftirfarandi deig:
2 egg
1 dl sykur
1 dl kókósmjöl
2 msk. Hveiti
1 tsk. Lyftiduft
Egg og sykur þeytt saman og hveiti, lyftidufti og kókósmjöli síðan blandað í. Deiginu hellt eða smurt yfir rabbabarann og söxuðum möndlum stráð yfir.
Bakað við 180 - 200´í 30 til 40 mín. Borin fram með ís. Mjög góð líka með síðdegiskaffinu eða á veisluborðið.
Rabbabaradeser með Ritz-kexi
Þessi er sannarlega óvæntur, bæði hráefnið og bragðið. Ótrúlega góður, fljótlegur og klikkar aldrei.
Rabbabari í bitum er settur í eldfast mót; u.þ.b. tvöfalt lag.
C.a. hálfur pakki af Ritz-kexi er mulið og saman við það 3 msk af púðursykri og því sáldrað yfir.
Brætt smjör, c.a. 30 g sett yfir. Einnig má nota matarolíu, c.a. 4 msk. Þarna verður fólk aðeins að þreyfa sig áfram.
Ofaná þetta er síðan dreift ristuðum sólblómafræjum
Þetta er síðan bakað við 180´ í c,a, hálfa klst.
Þessi baka er síðan borin fram með góðum vanilluís. Og slær í gagn!
Gamaldags rabbabaratriffle
Makkarónukökur muldar í ábætisglös og vættar með sherry eða púrtvíni ef til er
Ofaná þetta er settur slatti af rabbabarabitum sem hefur verið soðinn í sykurlegi í nokkrar mínútur. Þá kemur vanillubúðingur. Áður en hann er alveg kólnaður er stráð yfir ristuðum möndluflögum og síðan settur á deserinn rjómatoppur áður en hann er borinn fram.
|